25nóvember

jæja, ég ákvað að henda inn einni stuttri færslu... jafnvel síðustu færslunni, hver veit
ætla bara að punkta um það sem hefur verið að gerast hjá mér síðustu 10 daga

  • fór sem sagt í borgina til hennar Herdísar Jónu
  • byrjuðum á Kringlunni og svo var það Smáralindin
  • eyddi föstudeginum í að horfa á Ally McBeal þangað til Herdís kom heim (dreymdi einmitt þessa nótt að Saddam Hussein hafi komið á Seyðisfjörð og hengt hann Ara afa! hef sjaldan liðið eins skringilega þegar ég vakna!)
  • svo var bara kíkt á ömmuling og fengið sér að borða
  • fórum svo heim að gera okkur reddí fyrir kvöldið og að sjálfsögðu fylgdu því drykkir... ég mæli með Ally McBeal með áfengi :) hlógum mjög svo mikið :D
  • kíktum á Telmu og Oddný aður en haldið var í bæinn... Gretta farin að sofa! var ekki að fýla það
  • svo var bara kíkt á Q-Bar (enda er ég snarsamkynhneigð) og Celtic
  • fór í skemmtastaða sleik sem var náttúrlega markmið helgarinnar! (en ekki við stelpu samt)
  • fékk krotið hans Hannesar frænda í láni og var það vel notað :)
  • laugardagurinn fór í mest lítið....
  • Toys'r'us, ikea og að sjálfsögðu tattooið langþráða! er búin að dreyma um þetta síðan ég var krakki og lét því langþráðan draum rætast
  • svo var bara farið í Bónus og keypt í matinn en Egill, Eygló, Dagný, Siggi og Bergþór kíktu í mat til okkar
  • var þar drukkið vín og spjallað og rólegheit
  • svo héldum við Eygló, Herdís, Siggi, Bergþór, Hannes og Gulli í bænum á Hummerinum hans Gulla (sem var samt bara Ford Ecoliner (kann ekki að skrifa þetta!))
  • mín fór nú bara snemma heim samt sem áður, eða um 4 leytið ca
  • á sunnudeginum var bara haldið til ömmulings aftur og keyrði svo Kristján Ómar frændi mér á flugvöllinn
  • sem sagt ágætis helgi svona að mestu leyti bara :)
vá, þetta átti ekki að fara útí svona punktablog en oh well...
25.nóvember að klárast sem þýðir að það styttist óðum í jólin!
1. des var haldinn hátíðlegur á föstudaginn og sátum við Sif og hlóum okkur máttlausar :) var svo kíkt í fyrirpartý sem ég hélt að ég myndi eyða í að sitja í sófanum og þegja en svo var sko aldeilis ekki... við Sif tókum sko hring á dansgólfinu auk Anítu, Esteri, Unni, Helga og að ég gleymi nú ekki honum Konráði
var svo bara haldið á ball korter í 12... ákváðum að fara snemma og var bara byrjað að dansa strax :)
ég, edrú manneksjan á svæðinu, afrekaði það að detta á hausinn þegar ég var að labba niður tröppurnar úr Valaskjálf! vel gert Arna...
svo voru bara slagsmál og læti eins og alltaf þegar VA mætir á svæðið... er ekki að fíla þetta lið!
heyrðu, já held að þetta sé bara yfirdrifið langt blogg! áttu nú bara að vera nokkrar línur!

svo erum við Auður og Gulla komnar með síðu saman... http://www.zelster.blogspot.com
mín fékk bara nafnlaust sms um að ég væri komin með bloggsíðu :) og er þetta afraksturinn af því sms...

Lifið Heil



og ekki má gleyma því að segja það að hún Herdís Jóna teiknaði þessa mynd :) og fyrir þá sem ekki vita þá eru þetta tvíburar og ég er semsagt í tvíburamerkinu! :)
25. nóvember 2007 klukkan 22:13
Arna Magnúsdóttir
6 athugasemdir
14nóvember

Heimurinn í dag

  • Voru einhverjir fleiri en ég og Stefanía sem heyrðum Loga Bergmann, fréttamann Stöðvar 2, segja ríða í fréttunum í gær en ekki orðið rífa? fannst það helvíti gott hjá honum! enda sá maður glottið á honum! gaman af þessu
  • Britney Spears ekki að meika það og er uppfull af amfetamíni! segir hún hins vegar að þetta sé astmalyfið hennar! ég einmitt tek alltaf amfetamín fyrir æfingar frekar en astmalyfið mitt! virkar mikið betur... aðeins dýrara, en ég meina! slæmt mál þetta maður! annars er diskurinn hennar ,,Blackout" alveg ágætis hlustun!
  • Leoncie að gefa frá ser nýjan disk, Pukki Bollywood Baby, og mæli ég eindregið með því að allir næli sér í eintak af þessum diski! annars er það að frétta af henni að hún er orðin fasteignasali í Essex, Englandi og myndi ég ekki gera neitt annað en að fara til hennar að kaupa mér íbúð þegar ég flyt til Englands!
  • Góður maður á Indland ákvað að giftast hundi til að aflétta bölvun sem hann telur sig vera undir eftir að hann misþyrmdi 2 hundum fyrir einhverjum árum! þarf ég þá að fara að giftast flugum? var mikið í því að slíta vængi og fætur af flugum á mínum yngri árum!
  • Ashley Cole er ekki að fíla það að hafa hundinn sinn í herberginu þegar hann og kona hans (einhver gella í girls aloud) eru í óguðlegum athöfnum að sögn kjellu! hann vill eigi að þeir séu að fylgjast með! jahh, ég get nú svo sem alveg skilið það!
jæja, þetta fór í bara í rugl hjá mér hérna! :) ákvað bara að rita nokkur orð áður en mín heldur í borg óttans að leika mér , kaupa jólagjafir og að ógleymdu tattoo-inu góða sem er búið að vera draumurinn síðan ég var bara krakki.. eða já, meiri krakki en ég er í dag!
Ég er ekki frá því að Konráð hafi farið illa með hægra eyra mitt og hefur það einkennst af sársauka síðan hann ákvað að klemma hausinn minn eitthvað! þannig ef einhver ætlar að æsa sig við mig og öskra þá ætla ég að biðja sá hinn sama að öskra vinstra meginn við mig!
með fyrirfram þökkum,
Arna Magnúsdóttir
14. nóvember 2007 klukkan 13:04
Arna Magnúsdóttir
3 athugasemdir
06nóvember

jæja, ætli það sé ekki viðeigandi að blogga núna! allt er einhvern veginn á afturfótunum en ég er samt einhvern veginn að geta brosað núna! enda var ég að fá góðar fréttir sem ég ætla eigi að rita hér :)
Herdís Jóna var í heimsókn alla síðustu viku og um helgina og skemmtum við okkur vel um helgina ásamt Gullu, Sif og fleirum :) margt athyglisvert kom í dagsins ljós og er alveg magnað hvað við frækurnar erum líkar! :)
stefnan er svo tekin á reykjavíkina til hennar Herdísar á fimmtudaginn í næstu viku og verður helginni eytt í borg óttans! :) kannski maður sjái þremenninga eitthvað? vonandi allaveganna... svo er það að sjálfsögðu tattooið góða sem mín er nú búin að vera að bíð eftir í möööörg mörg ár! :)
ég og löggiman virðumst ekki ætla að eigi bestu samskiptin! heyrði í honum í dag og já, ekkert gott með það að segja!
Konráð Vilhjálmsson er búinn að vera að gera líf mitt leitt síðustu tvo daga! augnráð hans eru að segja meira en 1000 orð =) en hann ætlar nú að bæta þetta upp fyrir mig með því að djamma með mér næsta sumar! :)
Auður Ösp er bara eitthvað að hangsast í Rúmeníu! kemur heim um næst helgi og ég er ekki frá því að manni hlakki til að hitta þessu elsku ;*
Gúrti stendur sig alltaf vel! :) ekkert nema gott um hann að segja :D hehe
jæja, ég held að ég segi þetta nú bara gott í bili! kannski ekki mest krassandi blogg í heimi, enda er svo sem ekkert að vilja að upplýsa of mikið! :) samt sem áður nóg um að vera




06. nóvember 2007 klukkan 14:32
Arna Magnúsdóttir
4 athugasemdir
30október

jáá, góða kvöldið! jiii minn eini, ég veit ekkert hvernig ég á að byrja þetta blogg! mín búin að liggja í sófanum í allan dag og horfa á sjónvarið sökum veikinda! svaf kannski í svona 3-4 tíma í nótt! hélt ég væri í alvörunni að deyja! mér var svo kalt! endaði með því að ég skreið upp í rúm til mömmu og lá með 2 sængur en það var ekki alveg að virka þannig ég fór inní herbergi og klæddi mig í föt og lagðist aftur upp í rúm... náði svo loksins að sofna eftir miklar þjáningar! við erum að tala um það að ég skalf allan tímann!
Akureyrarferðin fínasta ferð bara! misstum okkur á Subway og mér fannst nú bara ótrúlegt að okkur hafi ekki verið hent út! pöntuðum okkur Dominos kl 1 um nóttina og létum eins og fífl þá líka! :) nenni nú ekkert að tala um mótið sjálft sem einkenndist af algjöru skipulagsleysi! svo var bara drifið sig heim strax eftir mót og ég mætti alveg eiturhress á næturvakt! var heavy þreytt alveg hreint enda ekki mikið að gera á næturvöktum! var búin að vera vakandi í 22 tíma þegar ég loksins komst heim í rúmið!
Herdís Jóna er í bænum og er planið að fara á djammið á laugardagskvöldið með henni, Gullu og Sigríði! hlakka mikið til! svo langar mig svo ógeðslega mikið að fara suður og fá mér tattoo! planið er að fara um miðjan nóvember ef fjárhagsstaðan verður góð á þeim tímapunkti! og ætlum við frænkur þá að fá okkur tattoo og mála bæinn rauðan!
góðar fréttir í tónlistinni! nýi backstreet boys diskurinn var að koma út í dag og eru einungis 5 mínútur þangað til ég get farið að hlusta á hann! :) sko! maður getur ekki gleymt öllu frá æskunni! það er alltaf eitthvað sem situr eftir! :D
Helgi Snær er alltaf jafn sætur ;* elska hann!
og með þessum orðum ætla ég að segja bless og telja niður þangað til ég farið að hlusta á diskinn minn! :D


30. október 2007 klukkan 19:49
Arna Magnúsdóttir
3 athugasemdir
25október

ligg hérna í herbergi í 108 að horfa á Sódóma með Konna og ákvað að koma með eitt myndablogg... ekkert að frétta eftir helgina góðu! er að fara til Akureyrar á morgun og er að fara að keppa á laugardaginn! keyri beint heim eftir mótið og mæti galvösk á næturvakt! jæja, ég nenni þessu ekki lengur... vær sa god!


þið fáið verðlaun ef þið fattið hvaða staf við Guðbjörg og Ása erum að mynda! :)


Þórdís og Sylvía ó só sexy!


gess hó!




voðalega þreytt fólk hér á ferð!


hahaha! ég varð bara að setja hana! :)


við Gretta að meika það í boltanum! :)


Ég og Ari sæti frændi minn!


verið að spila 70 mínútna spilið!


oooog drekka!


er hægt að vera eitthvað sætari!?





haha, sætu við! :)


Ljósbrá sæta ;*


hversu sætar getur fólkið verið! :)


25. október 2007 klukkan 16:02
Arna Magnúsdóttir
4 athugasemdir
22október

jáá, það skal enginn segja að það gerist aldrei neitt hérna á Seyðisfirði! ekki það að það hafi verið gott mál það sem gerðist hérna um helgina! slagsmál bæði föstudags og laugardagskvöld! ég er reyndar ekki með málin alveg á hreinu hvað gerðist á laugardaginn en ég tel mig vita þokkalega vel hvað var í gagni á föstudaginn þar sem maður var þarna að reyna að stía þessa menn í sundur! eeen ég ætla nú svo sem ekkert að fara í smáatriðin! en löggiman mætti á svæðið bæði kvöld og fékk ég smá fyrirlestur frá honum Davíð "félaga mínum"! hann var ekki alveg nógu sáttur með mig þegar ég kallaði hann félaga! hann heitir sko ekki félagi! hann heitir Davíð! passa mig á þessu næst þegar ég tala við hann sem ég svo sem stórefast að verði einhvern tímann! hef ekki mikla trú á þessum mönnum! þykjast vera eitthvað yfir öðrum hafin bara afþví þetta fólk gengur um í einhverjum búningum!
eeen nóg um það! mín mætti í blak í gær voða hress í gær og ég held að ég hafi aldrei á ævinni verið jafn þung á mér! jiiiminn eini! ég hélt að ég myndi ekki meika það að vera þarna een reddaðist allt saman! var samt voða reið og pirruð eitthvað! kemur á óvart! ég pirruð? það getur ekki verið! ég var nú einmitt spurð að því á föstudaginn afhverju ég væri alltaf svona reið! og ég get nú ekki sagt að ég hafi voðalega mikil samskipti við þennan mann en það virðist skína svona vel í gegn að ég sé ekki hin jákvæðasta! kannski eitthvað sem maður þyrfti að skoða!
fór í einn tíma í skólanum í dag en fór svo heim sökum magaverkja, hausverks og bara ógleði! var með æluna upp í hálsi í morgun og já, var bara alls ekkert að líða vel! svo frá rúmlega 11 - 3! er öll að koma til þó svo að maginn sé alls ekki að gera góða hluti núna!
en jæja, ég held að ég endi þetta á einn mynd af þessum annars yndislega bæ okkar! :)


22. október 2007 klukkan 16:04
Arna Magnúsdóttir
4 athugasemdir
18október

Jæja, ætli það sé ekki komin tíma á mína... allt og ekkert búið að gera þessa vikuna og ber þar hæst þegar ég þurfti að leika franska utanríkisráðherrann! já, Margaret Ann eða hvað sem hún nú heitir lét mig leika franska utanríkisráðherrann og átti ég að vera partur af fundi milli mín og íranska forsætisráðherrans þar sem við vorum að ræða um kjarnorkuplön þeirra! þetta var allt bara afþví ég þurfti að taka þátt í umræðu hennar í upphafi tímans og eftir þetta ætla ég alltaf að halda kjafti í þessum tíma nema ég bara algjörlega neyðist til að tala við hana!
Fór í badminton í gær í fyrsta skipti í mörg mörg ár! ágætis skemmtun svo sem! ég er náttúrulega með taktana alveg á hreinu! hef engu gleymt! Og að ég tali nú ekki um hvað ég er að brillera í blakinu! jájá! orðið ,,belja" er orðið nokkuð algengt hjá mér og jafnvel ,,heimska belja"! það má náttúrulega ekki blóta í minni fjölskyldu þannig ég verð bara að virða það! tapaði samt 200 kalli (100 kall fyrir hvert blót) í gær þegar ég var í bubble struggle rebubbled! er alveg orðin ,,hútt" á honum! ég var bara í makindum mínum að leika mér í þessum leik í gærkvöldi fyrir framan sjónvarpið og hélt að Stefán Ómar væri sofnaður og sagði hel*****, djö*******! heyrist þá ekki í krakkanum ,,200 KALL!!!" nú fer maður að nálgast 1000 kallinn held ég bara!
góð saga þessi!
jæja, Auður Ösp ein heima um helgina og er ég búin að ákveða það að verði voðavoða gaman hjá okkur þríeykinu! :) er samt að fara að senda smáauglýsingu í fréttablaðið, moggann og dv afþví þær eru ömulegar og alveg hundleiðinlegar vinkonur! heldur betur!
jæja, franski utanríkisráðherran kveður í bili!
18. október 2007 klukkan 10:11
Arna Magnúsdóttir
2 athugasemdir
14október

...

Klukkan er að verða hálf 1 og er ég komin heim! var heima hjá Viktori en var einhvern veginn ekki í stemmara... ætlaði með stúlkunum á Láruna en ég veit ekki hvað varð af þeim! vona að bara að þær séu ekki dauðar einhvers staðar!
jæja, mín ákvað að labba heim þar sem ég skilaði bílnum en varð svo ekkert drukkin! var komin að húsinu hennar Jónu Ólafs þegar ég gafst upp á skónum mínum og labbaði heim á tánum! er með viðbjóðslega blöðru á vinstri fæti og get ekki einu sinni verið í sokk! mjög svo sárt! eins og kannski heyrist þá er ég ekki í besta skapinu núna...
Ísland að kúka á sig eins og alltaf! svaf nú bara yfir leiknum þar sem ég var vel þreytt þegar ég kom heim úr vinnunni! kíktum á Láruna í gær en get ekki sagt að ég hafi skemmt mér vel þar þannig ég fór mér heim og gisti Auður hjá mér! fór í sófann um 25 mín í 7 afþví ég gat ekki sofið vegna hrota! ég veit ekki hvað ég er að sofa nálægt þér manneskja! :)
jæja, þreytan farin að segja til sín þannig ég ætla að fara að hátta mig, leggjast undir sæng og horfa á leaglly blonde 2 þó svo að mér finnist hún ekkert voðalega skemmtileg! well, what are you gonna do!
enda þetta á mér og sæta bróður mínum sem ég vildi að væri hjá mér svo ég gæti kúrað hjá honum!

14. október 2007 klukkan 00:33
Arna Magnúsdóttir
1 athugasemd
08október

jæja, klukkan er 01:15 og mín er ennþá vakandi! og ástæðan fyrir því er einfaldlega sú að ég er eða var að læra undir nátt 113 próf og ég ætla mér að fá góða einkunn, allaveganna miðað við mína hæfileika í náttúrufræðinni sem eru alls ekki svo miklir! svo er planið að vakna eldsnemma í fyrramálið og halda áfram! Ég er ekki frá því að þetta sé í fyrsta skiptið á allri minni menntaskólagöngu sem ég les allt sem ég á að lesa fyrir próf! ekki bara glósur og verkefni! *klapp fyrir mér!*
helgin búin að vera öll hin rólegasta sem er svooo fínt! við auður spiluðum bara trival með familíunni hérna á hlíðarveginu í gær og höfðum það notalegt! hafði gott af rólegheitunum svona einu sinni!
óvissuball um næstu helgi? er alls ekkert svo viss um að ég ætli mér að mæta á það! allaveganna eins og er er enginn stemmari hjá mér fyrir þessu balli! en maður sér til! svo er víst Jagúarball hér? þetta er maður allaveganna að heyra! ekki það að Jagúar sé eitthvað skemmtileg!
Ég og Aníta erum algjörir letingjar og fórum ekki í gönguna okkar! við munum gera það einhvern tímann!! ekki spurning!
horfði á 1. þáttin af grey´s anatomy í gær! ágætasti þáttur svo sem en ég er samt fúl að dr.Burke hafi verið rekinn úr þáttunum!
jæja, ég held að ég segi þetta gott í bili! en ég veeerð bara að setja þessar myndir inn sem ég var að finna áðan! :) get ekki sagt annað en þið eruð alveg ógillilega sæt! :D

 Helgi sætur í 8. bekk :)

Unnur Sif og Tinna einnig sætar! ;)

Tinna ;)

fallegur hópur! :D




og svo ein af okkur Helga í lokin! ;)
08. október 2007 klukkan 01:47
Arna Magnúsdóttir
5 athugasemdir
03október

...

,,Ég get ekki lesið klukkatíma á 70 blaðsíðum afþví að ég hleyp svo hægt!"
Toppar þetta ekki bara heimskuna? jahh, ég náði allaveganna að afreka þetta í gær! Ég gleymdi líka að taka Auði mína með mér uppeftir! var smá í öðrum heimi í gær en var þreytan í algjöru hámarki!
Mín bara byrjuð í blakinu! er lengi búin að langa að mæta en þorði því ekki afþví þessar konur búnar að vera í þessu í mööörg mörg ár! fannst ekkert meira pirrandi þegar ég var yngri en þegar fólk sem kunni ekki fótbolta kom á æfingar! (en það var svo sem meira gelgjan frekar en allt annað sem réð þar ríkjum!) ég var svo sem ekkert alveg að skíta á mig! ekkert smá marin, en það er bara gaman!hef trú á þessu!

svo er maður í golfinu og það er ekkert smá gaman! kann svo ekki neitt en samt svo gaman! nú fer maður og rífur pabba með sér! :)
hmmm, hvað á ég að segja ykkur meira!
fór á fáskrúðsfjörð um helgina í afmæli hjá Guðbjörgu ;* smá stelpuhittingur og notalegheit! fékk viskí í fyrsta skipti og ég held ég leyfi mér að segja að ég ætla mér ekki að fá mér þann viðbjóð aftur! :)
svo á laugardaginn fengu Hrefna og Sif mig í 50 afmæli hjá Jóni Halldóri! :) var að ná í mömmu og þar voru þær staddar og mín var þar í svona 1 og hálfan - 2 tíma! var dj í smá stund en það var ekki að ganga upp þannig ég sagði starfi mínu fljótlega lausu! :)
en jæja, Sjálfstætt fólk kallar! yeah baby
ætla að enda þetta á nokkrum gullfallegum myndum af okkur Ljósbrá fyrir um 2 árum :)




03. október 2007 klukkan 10:03
Arna Magnúsdóttir
6 athugasemdir

Atburðarteljari

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Arna Magnúsdóttir
  • Staður: Seyðisfjörður
  • Atvinna: Sjúkrahúsið á Seyðisfirði
  • Hjúskaparstaða: lausu
  • Um mig: Ég er nú bara ung dama frá firðinum fagra sem gengur í Menntaskólann á Egilsstöðum og vinnur á sjúkrahúsinu á Seyðisfirði! Allt gengur sinn vana gang hér á bæ og svo sem ekkert stórbrotið sem er í gangi! :)
  • Annað: In the end we remember not the words of our enemies but the silence of our friends!

Könnun

þetta eitthvað sniðugt?

Klukkan